Frumefnið
karl
Borist hefur tilkynning
um að nýtt frumefni hafi fundist,
"FRUMEFNIÐ KARL".
Frumefnið finnst:
í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám,
á öðrum
endanum á vindli eða veiðistöng. SJALDAN þó
nálægt börnum.
Eðlisþyngd:
70 -140 kg. og er breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar:
Þenst út í nálægð peninga og
valds, skreppur
saman í grennd við ryksugur og gólfskrúbba,
fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á
við umræður um
jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga
án kvenna.
Efniseiginleikar: Dregst
að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og
tólum.
Ofsafengin viðbrögð
við skorti á ummönnun og eftirtekt þ.e.
ósjálfbjarga án kvenna.
Notkun: Nauðsynlegt
(ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi
gagns að öðru leyti. (Hristist við notkun).
VARÚÐ: Getur
eitrað líf kvenna ef þær eru ekki vel á
verði.
|