25
atriði sem sýna framá að þú sért
orðin(n) fullorðin(n)
1.Pottaplönturnar þínar
eru á lífi og þú getur ekki reykt neina
þeirra.
2.Þú gefur þér
tíma til að taka af þér úrið
áður en þú ferð að stunda kynlíf.
3.Þú geymir meiri mat
en bjór ísskápnum.
4.Klukkan sex að morgni er fótaferðatími
en ekki háttatími.
5.Þú heyrir uppáhaldslagið
þitt í matvöruverslun Hagkaup.
6.Þú fylgist með veðurfréttum.
7.Vinir þínir giftast
og skilja í staðinn fyrir að byrja og hætta
saman.
8.Sumarfríið þitt
styttist úr 3mánuðum í 3vikur.
9.Bolur og gallabuxur eru ekki lengur
spariklæðnaður.
10.Það ert þú
sem hringir á lögregluna til að kvarta yfir hávaða
í nágrönnum.
11.Eldri ættingjar hætta
að segja kynlífsbrandara nálægt þér.
12.Þú hefur ekki hugmynd
um hvenær pizzustaðir loka á kvöldin.
13.Bílatryggingarnar lækka
en en afborganir af bílalánum hækka.
14.Þú ert farin að
borða salöt sem aðalrétt.
15.Þú færð bakverk
ef þú sefur í sófanum.
16.Þú vaknar fyrir kl.
9.00 á sunnudögum “af því það
er svo hressandi”
17.Út að borða og bíó
er að fara út að skemmta sér, ekki bara byrjun
á góðu kvöldi.
18.Þú verður slæmur
í maganum, ekki saddur/södd ef þú færð
þér heila pizzu.
19.Þú ferð í
apótekið til að fá þér íbúfen,
ekki til að kaupa smokka eða þungunarpróf.
20.Vín undir níuhundruð
kalli er ekki lengur “ágætis kaup”
21.Þú borðar morgunverð
á morgunverðartíma.
22.“Ég get drukkið
eins og ég var vanur” kemur í staðinn fyrir
“Ég ætla aldrei
að drekkka aftur svona mikið”
23. 90% af tíma þínum
fyrir framan tölvuna fer í raunverulega vinnu.
24.Þú drekkur ekki lengur
heima til að spara pening áður en þú
ferð á bari.
25.Þú lest allan þennan
lista og leitar í örvæntingu að einhverju
sem á ekki við þig.
|